Átti heimsmeistarinn að verja? 

Leandro Trossard og Thomas Partey skoruðu mörk Arsenal í sigrinum á Aston Villa á útivelli, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Skoraði Partey sitt mark með skoti utant eigs en Emiliano Martínez í marki Aston Villa hefði getað gert betur. 

David Raya í marki Arsenal á skilið sitt hrós því hann varði nokkrum sinnum gríðarlega vel og sérstaklega frá Ollie Watkins af stuttu færi.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert