Auglýsingaskiltin hrundu (myndskeið)

Tomás Soucek og Jarrod Bowen sáu um að gera mörk West Ham er liðið vann útisigur á Crystal Palace, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Stuðningsmenn Palace fögnuðu vel og innilega þegar Soucek skoraði, með þeim afleiðingum að auglýsingaskiltin fyrir framan þá í stúkunni hrundu.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert