Dramatískt tap Manchester United

Joao Pedro fagnar sigurmarkinu.
Joao Pedro fagnar sigurmarkinu. AFP/Glyn Kirk

Brighton hafði betur gegn Manchester United, 2:1, í fyrsta leik 2. umferðar ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í Brighton í dag. 

Brighton er á toppnum með fullt hús stiga eftir tvo leiki. United er í áttunda sæti með þrjú stig. 

Danny Welbeck kom Brighton yfir á 32. mínútu leiksins. Þá fékk hann sendingu fyrir frá Karou Mitoma og potaði boltanum einfaldlega í netið, 1:0. 

Danny Welbeck kemur boltanum yfir línuna.
Danny Welbeck kemur boltanum yfir línuna. AFP/Glyn Kirk

Danny Welbeck átti síðan skalla í þverslá á 49. mínútu. 

Mínútu síðar keyrði Amad Diallo upp völinn, fór illa með Joel Veltman og skaut í Jan Paul van Hecke og þaðan fór boltinn í netið, 1:1. 

Alejando Garnacho setti boltann í opið markið á 70. mínútu og þar héldu United-menn að þeir væru komnir yfir. 

Í endursýningu mátti hins vegar sjá að Garnacho skaut í Joshua Zirkzee og þaðan fór boltinn í netið. Dómarinn Craig Pawson dæmdi því markið af. 

Brighton-maðurinn Billy Gilmour í baráttunni við Amad Diallo.
Brighton-maðurinn Billy Gilmour í baráttunni við Amad Diallo. AFP/Glyn Kirk

Í uppbótartíma seinni hálfleiks skoraði Joao Pedro sigurmarkið fyrir Brighton. Þá átti Simon Adingra frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Pedro sem stangaði boltann í gagnstætt horn, 2:1, dramatík. 

Brighton heimsækir Arsenal í næstu umferð en Manchester United fær Liverpool í heimsókn. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Brighton 2:1 Man. United opna loka
90. mín. Billy Gilmour (Brighton) fer af velli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert