Leeds að fá góðan liðstyrk

Manor Solomon í leik með Tottenham á síðustu leiktíð.
Manor Solomon í leik með Tottenham á síðustu leiktíð. AFP/Justin Tallis

Enska félagið Leeds er að fá góðan liðstyrk fyrir komandi átök í ensku B-deildinni í fótbolta. Ísraelski kantmaðurinn Manor Solomon er á leið til félagsins að láni frá Tottenham.

Solomon kom til Tottenham fyrir síðasta tímabil en lék aðeins sex leiki með liðinu vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í október á síðasta ári.

Þar á undan lék hann 19 leiki með Fulham í ensku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim fjögur mörk.

Leeds er á sínu öðru tímabili í röð í B-deildinni eftir tap í úrslitum umspilsins á Wembley í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert