Nýliðarnir fá reyndan sóknarmann

Jordan Ayew í leik með Crystal Palace um síðustu helgi.
Jordan Ayew í leik með Crystal Palace um síðustu helgi. AFP/Henry Nicholls

Nýliðar Leicester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla hafa fest kaup á sóknarmanninum Jordan Ayew frá Crystal Palace á fimm milljónir punda.

Ayew, sem er landsliðsmaður Gana, er 32 ára gamall og skrifaði undir tveggja ára samning eftir að hafa verið hjá Palace undanfarin sex ár.

Kaupverðið gæti hækkað upp í átta milljónir punda að ýmsum ákvæðum uppfylltum.

Leicester heimsækir Fulham í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 15 í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert