Þrumufleygur í slána og inn (myndskeið)

Yves Bissouma skoraði glæsilegt mark fyrir Tottenham Hotspur í leik liðsins gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla, sem stendur nú yfir.

Staðan er 2:0 í hálfleik en Bissouma kom heimamönnum í forystu á 14. mínútu.

Hann fékk þá boltann frá Dejan Kulusevski í D-boganum, skaut viðstöðulaust af feikna krafti þaðan sem boltinn fór í þverslána og inn.

Markið glæsilega má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert