Tíunda þrenna Haalands fyrir City (myndskeið)

Erling Haaland skoraði þrennu fyrir Manchester City í tíunda sinn þegar liðið lagði nýliða Ipswich Town að velli, 4:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Sammie Szmodics kom gestunum frá Ipswich óvænt yfir áður en Haaland tók til sinna ráða.

Fyrst skoraði hann úr vítaspyrnu, þá með góðri afgreiðslu eftir laglega sendingu Kevin De Bruyne og loks með föstu skoti fyrir utan vítateig sem fór bláhornið nær.

De Bruyne komst einnig á blað eftir afleit mistök hjá Arijanet Muric í marki Ipswich.

Mörkin má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert