Enn einn leikmaðurinn til nýliðanna

Jack Clarke er orðinn leikmaður Ipswich.
Jack Clarke er orðinn leikmaður Ipswich. Ljósmynd/Ipswich

Enska knattspyrnufélagið Ipswich hefur gengið frá kaupum á Jack Clarke frá Sunderland. Nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni greiða um 15 milljónir punda fyrir kantmanninn.

Ipswich hefur nú fengið til sín ellefu leikmenn í sumar. Gerir Clarke fimm ára samning við nýja félagið sitt.

Clarke hefur verið einn allra besti leikmaður Sunderland undanfarin ár en hann fór ungur að árum til Tottenham frá Leeds en fékk fá tækifæri í Lundúnum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert