Fékk sendingu frá Palmer í öllum mörkunum (myndskeið)

Cole Palmer lagði upp öll þrjú mörk Noni Madueke í sigri Chelsea á Wolves, 6:2, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Wolverhampton í dag. 

Staðan var 2:2 í hálfleik og hafði Palmer þá skorað annað mark Chelsea. 

Madueke skoraði næstu þrjú mörk liðsins en öll komu eftir sendingu frá Cole Palmer. 

Mörk leiksisn má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert