Knattspyrnumennirnir Tomas Soucek og Jarrod Bowen komu ungum dreng til bjargar eftir að auglýsingaskilti lenti á honum í fagnaðarlátum West Ham stuðningsmanna í gær.
Soucek skoraði annað mark liðsins í 2:0 -sigri gegn Crystal Palace og hann og Bowen voru að fagna með stuðningsmönnum þegar Soucek sá að ungur drengur var fastur undir skilti sem féll þegar stuðningsmenn liðsins lentu á því.
Soucek hélt skiltinu uppi og Bowen hjálpaði drengnum að standa upp.
Omg Soucek & Bowen saved that young lad from what could’ve been a very very serious situation. Huge respect to the pair of them ❤️ pic.twitter.com/9tTavxUZA6
— BEN (@SMXLFC) August 24, 2024
https://www.mbl.is/sport/enski/2024/08/24/auglysingaskiltin_hrundu_myndskeid_2/