Svakaleg skyndisókn Liverpool (myndskeið)

Fyrra mark Liverpool í 2:0-sigri á Brentford var auðvelt en laglegt í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Anfield í dag. 

Liverpool er með fullt hús stiga eftir tvo leiki en fyrra markið skoraði Luis Díaz á 13. mínútu. Þá keyrði Jota upp völlinn og þræddi Díaz í gegn sem kláraði laglega. 

Seinna mark Liverpool skoraði síðan Mohamed Salah. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert