Knattspyrnumaðurinn Eddie Nketiah er á leiðinni til Crystal Palace frá Arsenal.
The Athletic greinir frá en Palace mun greiða Arsenal 25 milljónir punda fyrir framherjann en auk þess geta fimm milljónir bæst við með árangurstengdum greiðslum.
Nketiah er búinn að vera í leit að nýju félagi í allt sumar en hann var í stóru hlutverki hjá Arsenal fyrri hluta síðasta tímabils, sem og á þar síðustu leiktíð.
Hann hefur hins vegar lítið spilað með Arsenal í ár.