Knattspyrnumaðurinn Hannibal Mejbri er á leiðinni til Burnley frá Manchester United.
SkySports greinir frá en samkvæmt miðlinum mun Hannibal gangast undir læknisskoðun í dag.
Hannibal, sem er frá Túnis, var í akademíu Manchester United og spilaði 13 leiki fyrir aðallið félagsins.
Þá var hann á láni hjá Sevilla seinni hluta síðustu leiktíðar en spilaði lítið.