Guardiola vill fá Orra Stein

Orri Steinn Óskarsson á Kópavogsvelli.
Orri Steinn Óskarsson á Kópavogsvelli. mbl.is/Hákon Pálsson

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City, vill fá landsliðsmanninn Orra Stein Óskarsson til félagsins. 

Vefsíðan CaughtOffside greinir frá en samkvæmt henni er Manchester City virkilega að spá í því að kaupa Íslendinginn. 

Orri Steinn hefur byrjað tímabilið frábærlega hjá FC Köbehavn í Danmörku og skorað sjö mörk í ellefu leikjum. 

Pep Guardiola hefur þá samþykkt að fá Íslendinginn til félagsins en City þyrfti að greiða Köbehavn 15 til 20 milljónir evra, tvo til þrjá milljarða íslenskra króna, fyrir Orra Stein. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert