Í læknisskoðun hjá Liverpool í dag

Giorgi Mamardashvili.
Giorgi Mamardashvili. AFP/José Jordán

Georgíski knattspyrnumarkvörðurinn Giorgi Mamardashvili fer í læknisskoðun hjá Liverpool í dag. 

Enskir miðlar greina frá en Liverpool kaupir Mamardashvili frá Valencia fyrir samtals 35 milljónir evra. Hann verður þó á láni hjá Valencia út þetta tímabil. 

Litið er á Georgíumanninn, sem er 23 ára gamall, sem framtíðarmarkvörð Liverpool en hann var frábær á Evrópumótinu með Georgíu fyrr í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert