Úrúgvæinn færist nær Manchester United

Úrúgvæinn Manuel Ugarte er að öllum líkindum á leiðinni til …
Úrúgvæinn Manuel Ugarte er að öllum líkindum á leiðinni til Manchester United. AFP/Robyn Beck

Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Manuel Ugarte færist nær Manchester United. 

Ugarte er leikmaður París SG en hann gekk í raðir franska félagsins fyrir síðasta tímabil. Hann stóð þó ekki undir væntingum í frönsku höfuðborginni. 

Scott McTominay er sagður vera á leið til Napolí og eftir að það gerist getur Ugarte orðið leikmaður Manchester United. 

Samkvæmt enskum miðlum vill Ugarte aðeins fara til Manchester-félagsins og bíður átekta.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert