Eitt af mörkum tímabilsins? (myndskeið)

Chelsea-maðurinn Cole Palmer skoraði glæsilegt mark er liðið fór illa með Wolves, 6:2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudag.

Palmer lyfti boltanum ansi snyrtilega utan teigs yfir Jose Sá í marki Wolves. Fleiri falleg mörk voru skoruð um helgina og gerði Luis Díaz hjá Liverpool eitt þeirra og Thomas Partey hjá Arsenal sömuleiðis.

Mörkin má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert