Fer á láni frá Chelsea

Kepa Arrizabalaga í leik með Chelsea.
Kepa Arrizabalaga í leik með Chelsea. AFP/Adam Hunger

Spænski knattspyrnumarkvörðurinn Kepa Arrizabalaga er genginn til liðs við Bournemouth á lánssamning frá Chelsea. 

The Athletic greinir frá en Kepa verður leikmaður liðsins út þetta tímabil. Hann mun gangast undir læknisskoðun í dag og vonast Bournemouth eftir því að geta tilkynnt hann á eftir. 

Chelsea greiddi 72 milljónir punda fyrir Kepa sumarið 2018 en þá var hann markvörður Athletic Bilbao. 

Hann hefur heldur betur ekki staðist undir væntingum en hann var varamarkvörður Real Madrid á síðustu leiktíð, þegar að Thiabout Courtois var meiddur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert