Leikmaður Liverpool verður samherji Arnórs

Owen Beck í æfingaleik gegn Real Betis.
Owen Beck í æfingaleik gegn Real Betis. AFP/Kamil Krzacyzynski

Walsverjinn Owen Beck er genginn til liðs við Blackburn á láni frá Liverpool. 

Beck verður þar samherji Arnórs Sigurðssonar, landsliðsmanns í knattspyrnu, sem skoraði sigurmarkið í 2:1-sigri Blackburn á Ocford í ensku B-deildinni síðustu helgi. 

Beck, sem er 22 ára gamall, var á láni hjá skoska liðinu Dundee United á síðustu leiktíð en fyrir það hefur hann farið á láni til Bolton. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert