Mögnuð tilþrif Arsenal-mannsins (myndskeið)

David Raya, markvörður Arsenal, átti eina af bestu markvörslum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið mætti Aston Villa á laugardaginn var.

Framherjinn Ollie Watkins átti þá skalla af stuttu færi eftir að boltinn hafði farið í þverslána en Raya var eldsnöggur niður og varði glæsilega.

Fleiri glæsilegar vörslur frá liðinni helgi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert