Mun fara frá Manchester United

Scott McTominay er á förum frá Manchester United.
Scott McTominay er á förum frá Manchester United. AFP

Skoski knattspyrnumaðurinn Scott McTominay er á förum frá Manchester United og til ítalska félagsins Napolí. 

Napolí mun greiða Manchester United 30 milljónir evra fyrir miðjumanninn en félagaskiptafræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá. 

McTominay hefur verið í stóru hlutverki hjá Manchester United síðan að hann þreytti frumraun sína með aðalliðinu árið 2017. 

Síðan þá hefur hann spilað 255 leiki og skorað 29 mörk. 

Þá mun Romelu Lukaku einnig verða leikmaður Napolí en hann myndaði einstakt samband við Antonio Conte, nýja stjóra Napolí, á sínum tíma hjá Inter Mílanó. Hann kemur til Napolí frá Chelsea. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert