PSG samþykkir tilboð United

Manuel Ugarte fagnar marki með Úrúgvæ.
Manuel Ugarte fagnar marki með Úrúgvæ. AFP/Robyn Beck

Franska knattspyrnufélagið París SG hefur samþykkt rúmlega 50 milljóna punda tilboð enska félagsins Manchester United í úrúgvæska miðjumanninn Manuel Ugarte.

Ugarte var aðeins í eitt tímabil hjá PSG en franska félagið keypti hann frá Sporting í Portúgal fyrir síðasta tímabil.

Miðjumaðurinn byrjaði 21 leik fyrir Parísarliðið á síðustu leiktíð en þrátt fyrir það átti enginn fleiri heppnaðar tæklingar í frönsku 1. deildinni en sá úrúgvæski.

Ugarte, sem er 23 ára, hefur leikið 22 leiki með A-landsliði Úrúgvæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert