Barcelona vill fá leikmann Liverpool

Stefan Bajcetic.
Stefan Bajcetic. AFP/Oli Scarff

Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona vill fá miðjumanninn Stefan Bajcetic til liðs við sig á láni frá Liverpool. 

Félagaskiptafræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá en samkvæmt honum hefur Barcelona boðið Liverpool fjórar milljónir evra fyrir lánssamninginn. 

Miðjumaðurinn Marc Bernal sleit krossband í sigri Barcelona á Rayo Vallecano, 2:1, í gærkvöldi og verður því frá út tímabilið. 

Hann er varnarsinnaður miðjumaður líkt og Bajcetic. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert