Fer framherji Liverpool til Arsenal?

Darwin Núnez hefur ekki verið í náðinni hjá Arne Slot.
Darwin Núnez hefur ekki verið í náðinni hjá Arne Slot. AFP/Benjamin Cremel

Úrúgvæski framherjinn Darwin Núnez gæti verið á förum frá Liverpool áður en sumarglugganum er lokað. 

Samkvæmt einhverjum enskum miðlum er Núnez ósáttur hjá Liverpool en hann hefur lítið spilað í upphafi tímabilsins undir nýjum stjóra Arne Slot. 

Þá er Arsenal sagt hafa áhuga á Núnez og að Úrúgvæanum lítist vel á hugmyndina að fara til Lundúnafélagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert