Liverpool hafnar Þýskalandsmeisturunum

Tyler Morton, til vinstri, gegn Arsenal á undirbúningstímabilinu.
Tyler Morton, til vinstri, gegn Arsenal á undirbúningstímabilinu. AFP/Charly Triballeau

Liverpool hefur hafnað tilboði Þýskalandsmeistara Bayer Leverkusen í knattspyrnumanninn Tyler Morton. 

Morton er 22 ára gamall miðjumaður sem stóð sig vel á láni með Hull í ensku B-deildinni í fyrra. 

Bayer Leverkusen hafði áhuga á leikmanninum en samkvæmt enskum miðlum hefur Liverpool hafnað félaginu. 

Þá er búist við því að Morton verði hjá Liverpool á þessu tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert