Stórkostleg byrjun Hákons Rafns

Hákon Rafn Valdimarsson ver víti Jack Payne.
Hákon Rafn Valdimarsson ver víti Jack Payne. Ljósmynd/Brentford

Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson hélt hreinu, varði víti og var maður leiksins í fyrsta keppnisleik sínum fyrir Brentford. 

Brentford vann D-deildarlið Colchester United, 1:0, á útivelli í 2. umferð enska deildabikarsins í fótbolta í kvöld. 

Hákon Rafn lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir Brentford en hann gekk í raðir félagsins í janúar á þessu ári. 

Keane Lewis-Potter skoraði sigurmark Brentford undir lok fyrri hálfleiksins en á 82. mínútu fékk Colchester víti. 

Á punktinn steig Jack Payne en Hákon varði frá honum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert