McTominay til Napoli í dag

McTominay í æfingaleik gegn Real Betis í sumar.
McTominay í æfingaleik gegn Real Betis í sumar. AFP/Orlando Ramirez

Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, flýgur til Ítalíu í dag þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá Napoli.

McTominay hefur leikið fyrir aðallið Manchesterliðsins síðan árið 2017 og spilað 255 leiki fyrir félagið. Standist Skotinn læknisskoðun mun hann skrifa undir samning við Napoli síðar í dag.

Kaupverðið er talið vera 30 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert