Á leið í læknisskoðun í Liverpool

Orel Mangala í leik með Lyon.
Orel Mangala í leik með Lyon. AFP/Fred Tanneau

Belgíski knattspyrnumaðurinn Orel Mangala er kominn í læknisskoðun hjá enska knattspyrnufélaginu Everton.

Mangala lék með Nottingham Forest frá 2022 og þar til í sumar er hann gekk í raðir Lyon. Nú er Everton að fá hann lánaðan út tímabilið frá franska félaginu.

Miðjumaðurinn hefur leikið 19 leiki með A-landsliði Belgíu. Hann skoraði tvö mörk í 47 leikjum með Forest í ensku úrvalsdeildinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert