Frá Arsenal til nýliðanna

Aaron Ramsdale er kominn til Southampton.
Aaron Ramsdale er kominn til Southampton. Ljósmynd/Southampton

Southampton, sem er nýliði á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur gengið frá kaupum á markverðinum Aaron Ramsdale frá Arsenal.

Southampton greiðir 18 milljónir punda fyrir leikmanninn, en sú upphæð gæti hækkað um sjö milljónir.

Ramsdale skrifaði undir fjögurra ára samning við Southampton, með möguleika á eins árs framlengingu.

Hann lék 89 leiki með Arsenal, sem keypti hann frá Sheffield United á 26 milljónir punda árið 2021. Ramsdale hefur leikið fimm landsleiki fyrir England.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert