Fetaði í fótspor föður síns (myndskeið)

Liam Delap gerði mark nýliða Ipswich er liðið gerði jafntefli við Fulham, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Markið var það fyrsta sem Delap gerði í úrvalsdeildinni og fetaði hann þar með í fótspor föður síns Rory Delap, sem skoraði á sínum tíma 23 mörk í ensku úrvalsdeildinni fyrir Derby, Southampton, Sunderland og Stoke.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka