Grimsby vann sinn annan sigur í D-deild Englands í fótbolta á leiktíðinni er liðið lagði Bradford, 2:1, á heimavelli í dag.
Jason Daði Svanþórsson var í byrjunarliði Grimsby og hann skoraði annað mark liðsins á 47. mínútu. Hann fór svo af velli á 88. mínútu. Var markið það fyrsta sem Jason skorar á Englandi.
Í C-deildinni hafði Birmingham betur gegn Wigan, 2:1. Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði Birmingham og hann lagði upp fyrra mark liðsins og lék allan leikinn. Alfons Sampsted kom inn á sem varamaður á 51. mínútu.
Birmingham er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig eftir fjóra leiki, eins og Wrexham og Stockport sem eru í tveimur efstu sætunum.