Rice sparkaður niður en fékk sjálfur rautt (myndskeið)

Declan Rice leikmaður Arsenal fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 49. mínútu í leik liðsins við Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Rice braut á Joel Veltman og potaði síðan boltanum í burtu með þeim afleiðingum að Veltman sparkaði hann niður í staðinn fyrir að sparka í boltann.

Enski miðjumaðurinn var því ekki aðeins sparkaður niður heldur fékk hann rautt spjald fyrir að tefja í þokkabót.

Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka