Gylfi: Hann er vitleysingur

Gylfi Einarsson var gestur Tómasar Þórs Þórðarson ásamt Eiði Smára Guðjohnsen í Vellinum á Símanum sport eftir þriðju umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. 

Meðal annars ræddu félagarnir um komu Jadon Sancho til Chelsea frá Manchester United. 

„Sancho er vitleysingur. Það er vesen á honum,“ sagði Gylfi. 

„Hann er góður í fótbolta en þetta er ekki leikmaður sem þú þarft inn í þennan Chelsea klefa,“ bætti Gylfi við. 

Umræðuna i heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert