Liverpool niðurlægði United á Old Trafford

Luis Díaz fer hamförum á Old Trafford.
Luis Díaz fer hamförum á Old Trafford. AFP/Paul Ellis

Liverpool hafði betur gegn erkifjendum sínum í Manchester United, 3:0, á Old Trafford í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.

Liverpool er í öðru sæti í deildinni með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og með jafn mörg stig og sömu markatölu og þmanchester City sem er í fyrsta sæti. Þetta var annað tap United í röð sem er í 14. sæti.

Leikurinn byrjaði jafn en Liverpool setti boltann í netið eftir aðeins sjö mínútur. Það gerði Trent Alexander-Arnold eftir flott spil en Mohamed Salah var rangstæður í uppbyggingunni. 

Liverpool-maðurinn Trent Alexander-Arnold í baráttunni við Diogo Dalot.
Liverpool-maðurinn Trent Alexander-Arnold í baráttunni við Diogo Dalot. AFP/Paul Ellis

Hægt og rólega tók Liverpool yfir og ýtti United neðar og á 35. mínútu kom fyrsta löglega markið. Casemiro gaf mótherja sínum Ryan Gravenberch boltann á miðjunni sem fór í átt að markinu og gaf svo Salah boltann sem sendi fyrir. Sending var á lofti á fjær og þar voru tveir Liverpool-menn, Dominik Szoboszlai og Luis Diaz, þeir hoppuðu upp á sama tíma en Szobosszlai beygði sig og Diaz stangaði boltann í netið.

Á 42. mínútu skoraði Diaz aftur og aftur er hægt að skrifa markið á mistök hjá Casemiro. Hann fer auðveldlega niður eftir snertingu frá Diaz sem tók boltann af honum og kom honum út á Salah, hann skilaði boltanum beint aftur á hann frá hægri og Diaz fór í skot með hægri í hægra hornið. Glæsilegt mark og Liverpool 2:0 yfir í hálfleik.

Luis Diaz að fagna öðru marki Liverpool í dag.
Luis Diaz að fagna öðru marki Liverpool í dag. AFP/Paul Ellis

Casemiro var tekin út af í hálfleik og United byrjaði seinni ágætlega. Joshua Zirkzee fékk frábært  færi á 52. mínútu en Alisson varði vel af stuttu færi.

Liverpool skoraði þriðja markið á 56. mínútu og það var Salah Alexis Mac Allister vann boltann á miðjunni og Liverpool fór í skyndisókn. Szoboszlai fer samferða Salah  í átt að teignum og sendir svo boltann á Salah sem skoraði.

Mohamed Salah og Virgil van Dijk að fagna þriðja marki …
Mohamed Salah og Virgil van Dijk að fagna þriðja marki Liverpool í dag. AFP/Paul Ellis

Salah fékk tvö stórhættuleg færi stuttu eftir markið en setti boltann rétt framhjá í bæði skiptin. 

Zirkzee var nálægt því að minnka muninn á 78. mínútu eftir fyrirgjöf frá Marcus Rashford á fjær. Virgil Van Dijk rétt missti af boltanum og Zirkzee var mættur fyrri aftan hann og náði að reka hælinn í boltann en hann rúllaði svo rétt framhjá markinu.

 Liverpool hefur ekki fengið mark á sig í fyrstu þremur leikjum liðsins í deildinni á tímabilinu.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Vestri 0:0 Fylkir opna
90. mín. Morten Ohlsen Hansen (Vestri) fær gult spjald
Tindastóll 2:1 Keflavík opna
97. mín. Leik lokið Heimakonur í Tindastól vinna 2-1 sigur á Keflavík og hafa komið sér þægilega fyrir með 16 stig í botnbaráttunni. Fylkir og Keflavík eru í tveimur neðstu sætunum með 10 stig.
KA 2:3 Breiðablik opna
90. mín. Leik lokið Mikilvægur en torsóttur sigur Blika.
FH 0:1 Stjarnan opna
65. mín. Björn Daníel Sverrisson (FH) fær gult spjald Það er aðeins að hitna í kolunum.
KR 3:2 ÍA opna
62. mín. Viktor Jónsson (ÍA) skorar 3:2 - Skagamenn minnka muninn! Steinar með fyrirgjöf frá hægri og Viktor skallar í netið af stuttu færi. Smit í boltanum en yfir línuna fer hann.
Víkingur R. 0:0 Valur opna
Engir atburðir skráðir enn
HK 0:0 Fram opna
Engir atburðir skráðir enn

Leiklýsing

Man. United 0:3 Liverpool opna loka
90. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka