Nýi maður Arsenal ekki með næstu tvo mánuðina

Mikel Merino verður frá í tvo mánuði.
Mikel Merino verður frá í tvo mánuði. Ljósmynd/Arsenal

Spænski knatt­spyrnumaður­inn Mikel Mer­ino verður frá keppni næstu vik­urn­ar vegna axl­ar­meiðsla sem hann varð fyr­ir á æf­ingu hjá nýja liðinu sínu Arsenal.

Mer­ino varð fyr­ir meiðsl­un­um er varn­ar­maður­inn Gabriel datt ofan á öxl­ina hans í ein­vígi þeirra á milli. 

Nú greinir Sambi Mokbel, blaðamaður DailyMail sem er náinn félaginu, frá því að Merino verði frá í allt að tvo mánuði. 

Fyrst var haldið að hann yrði aðeins frá í nokkrar vikur. 

Arsenal greiddi Real Sociedad 31,6 millj­ón­ir punda fyr­ir miðju­mann­inn, sem spilaði alla leiki Spán­ar á EM í sum­ar er liðið varð Evr­ópu­meist­ari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert