Fór illa með leikmann Liverpool (myndskeið)

Miðjumaðurinn ungi Kobbie Mainoo sýndi glæsileg tilþrif fyrir Manchester United er liðið mátti þola tap á heimavelli, 3:0, gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudag.

Mainoo lék skemmtilega á Diogo Jota hjá Liverpool og skildi þann portúgalska eftir.

Öll skemmtilegustu tilþrif 3. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert