Leikmaður Liverpool áberandi (myndskeið)

Brasilíski markvörðurinn Alisson varði nokkrum sinnum vel er Liverpool vann sigur á Manchester United, 3:0, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudaginn var.

Alisson reyndist Joshua Zirkzee framherja United erfiður og varði í tvígang vel frá honum.

Báðar vörslurnar voru á meðal þeirra bestu í 3. umferðinni sem var spiluð um helgina.

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá allar bestu vörslurnar í umferðinni en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert