Tómas Þór hættur – Hörður tekur við

Hörður Magnússon og Birkir Ágústsson.
Hörður Magnússon og Birkir Ágústsson. Ljósmynd/Síminn

Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi og íþróttalýsandinn Hörður Magnússon hefur tekið við sem umsjónarmaður Vallarins á Síminn Sport.

Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Síminn sendi frá sér í dag en Tómas Þór Þórðarson, sem hefur verið umsjónarmaður þáttarins síðastliðinn fimm ár, sem og ritstjóri enska boltans hjá Símanum, er hættur störfum.

Íþróttafréttamaðurinn ástsæli, Hörður Magnússon, er nýr stjórnandi Vallarins þar sem farið er yfir allt það helsta hverju sinni úr enska boltanum,“ segir í tilkynningu Símans.

„Hörður mun einnig lýsa fjölda leikja sem verður að teljast gleðiefni enda hefur Hörður verið einn vinsælasti lýsandi landsins um langt árabil. Þættinum hefur síðustu ár verið stýrt af Tómasi Þór Þórðarsyni sem hefur ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum,“ segir í tilkynningunni.

Spennt að fá Hörð til starfa

„Við erum afskaplega spennt að fá Hörð til liðs við okkur og við trúum því að áhorfendur muni taka vel í þær áherslubreytingar sem hann færir okkur enda Hörður hokinn af reynslu þegar kemur að bæði dagskrárgerð sem og lýsingu leikja,“ sagði Birkir Ágústsson, dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar hjá Símanum.

„Ástríða hans og áhugi á fótbolta mun skila sér hratt og vel á skjáinn. Að sama skapi þökkum við Tómasi Þór kærlega fyrir óeigingjarnt starf síðustu ár og frábært samstarf og óskum honum alls hins besta í hverju sem hann tekur sér fyrir hendur,“ bætti Birkir við.

Tekur við keflinu úr góðum höndum

„Ég tek við keflinu úr góðum höndum og er gífurlega spenntur að snúa aftur í enska boltann, besta sjónvarpsefni í heimi,“ sagði Hörður.

„Með nýjum manni í brúnni koma nýjungar, ný andlit og ný tímasetning en Völlurinn verður framvegis á mánudagskvöldum. Ný tímasetning mun gera okkur kleift að gera enn betur og kryfja málin til mergjar.

Sömuleiðis er ég fullur tilhlökkunar að setjast niður við hljóðnemann og lýsa stórleikjum enska boltans beint heim í stofu,“ sagði Hörður.

Ekki léttvæg ákvörðun

Það er ekki léttvæg ákvörðun að stíga frá borði núna eftir fimm ára starf,“ sagði Tómas Þór.

Ég er afskaplega stoltur af mínum fimm árum hjá Símanum þar sem ég hef unnið með frábæru fólki og fengið einstakt tækifæri til að byggja eitthvað upp frá grunni.

Þetta hefur verið einstakur tími sem nú tekur enda. Ég óska mínu fólki alls hins besta í framtíðinni og þakka kærlega fyrir mig,“ bætti Tómas við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert