Fyrrverandi fyrirliði Liverpool fallinn frá

Ron Yeats með Englandsmeistarabikarinn.
Ron Yeats með Englandsmeistarabikarinn. Ljósmynd/liverpoolfc.com

Ron Yeats, fyrrverandi fyrirliði karlaliðs Liverpool í knattspyrnu, er látinn 86 ára að aldri eftir nokkurra ára baráttu við Alzheimersjúkdóminn.

Skotinn Yeats var lykilmaður og fyrirliði Liverpool á sjöunda áratug síðustu aldar þegar liðið varð Englandsmeistari tvisvar, vann ensku bikarkeppnina einu sinni og vann ensku B-deildina einu sinni undir stjórn Bills Shanklys.

Alls lék hann 454 leiki fyrir Liverpool og skoraði í þeim 15 mörk frá 1961 til 1971. Þar af var Yeats fyrirliði í 400 leikjum. Aðeins Steven Gerrard hefur verið fyrirliði í fleiri leikjum í sögu Liverpool.

Yeats var harðskeyttur miðvörður sem Shankly lýsti sem „risa“ í sögu í Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert