Füllkrug ekki með gegn Hollandi

Niclas Füllkrug í treyju West Ham
Niclas Füllkrug í treyju West Ham AFP/Justin Tallis

Framherji Þýskalands og West Ham, Niclas Füllkrug, er meiddur á hásin og verður ekki með Þýskalandi gegn Hollandi í leik liðanna í Þjóðardeild Evrópu í kvöld.

Framherjinn stæðilegi hefur ekki getað æft með liðinu vegna meiðslanna en hann skoraði fyrsta mark Þjóðverja í 5:0 sigri liðsins á Ungverjum á laugardaginn.

Füllkrug fór af velli á sextugustu mínútu og snýr aftur til Lundúna þar sem sjúkrateymi West Ham mun taka við meðhöndlun hans fyrir leik liðsins gegn Fulham á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert