Ronaldo er langt í burtu

Erik ten Hag svaraði blaðamönnum í dag.
Erik ten Hag svaraði blaðamönnum í dag. AFP/Darren Staples

Erik ten Hag knattspyrnustjóri Manchester United var spurður út í ummæli portúgölsku stjörnunnar Cristiano Ronaldo á blaðamannafundi í dag.

Ronaldo gagnrýndi hugarfar hollenska stjórans í viðtali á dögunum, en ten Hag var stjóri Manchester United þegar Ronaldo yfirgaf félagið í annað sinn í lok árs 2022.

„Sagði hann að United gæti ekki orðið meistari? Hann er langt í burtu núna, í Sádi-Arabíu, langt frá Manchester. Það hafa allir rétt á sinni skoðun,“ sagði ten Hag um ummælin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert