Aston Villa hafði betur gegn Everton, 3:2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Annan leikinn í röð komst Everton í 2:0 og tapaði.
Aston Villa er í þriðja sæti deildarinnar með níu stig. Everton er stigalaust á botninum.
Dwight McNeil kom Everton yfir á 16. mínútu og Dominic Calvert-Lewin tvöfaldaði forskotið á 27. mínútu.
Ollie Watkins lagaði stöðuna fyrir Villa á 36. mínútu og voru hálfleikstölur 2:1.
Watkins var aftur á ferðinni á 58. mínútu er hann jafnaði í 2:2, áður en varamaðurinn Jhon Durán gerði sigurmarkið á 76. mínútu.