Newcastle kom til baka og vann gegn Wolves, 2:1, í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í Wolverhampton í dag.
Newcastle er með tíu stig í þriðja sæti líkt og Arsenal sem er í öðru. Wolves er í 18. sæti með aðeins eitt stig.
Mario Lemina kom Wolves yfir á 36. mínútu, 1:0, sem voru hálfleikstölur.
Fabian Schär jafnaði metin á 75. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Harvey Barnes sigurmark Newcastle og tryggði liðinu 2:1-sigur.
Newcastle heimsækir Fulham í næstu umferð en Wolves heimsækir Aston Villa.