Verður frá í tvo mánuði

Yoane Wissa í þann mund að koma Brentford yfir gegn …
Yoane Wissa í þann mund að koma Brentford yfir gegn Manchester City á laugardag. AFP/Oli Scarff

Yoane Wissa, sóknarmaður Brentford, verður frá um tveggja mánaða skeið eftir að hann meiddist á ökkla í 2:1-tapi fyrir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardag.

Wissa skoraði mark Brentford í leiknum eftir aðeins 22 sekúndna leik en þurfti síðar í honum að fara meiddur af velli.

„Því miður eru ekki góðar fréttir af Wissa. Hann verður frá í um tvo mánuði.

Hann hefur verið okkur mjög mikilvægur og skilur eftir sig stórt skarð en við munum finna lausn á þessu,“ sagði Thomas Frank, knattspyrnustjóri Brentford, í samtali við heimasíðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert