Vill vinna fyrir Shaw

Unai Emery.
Unai Emery. AFP/Adrian Dennis

Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, minntist Gary Shaw fyrir leik liðsins gegn Young Boys í Meistaradeild Evrópu sem fram fer í kvöld. Shaw var hluti af Evrópumeistaraliði Aston Villa árið 1982.

„Ég votta fjölskyldu Shaw og stuðningsmönnum Aston Villa samúð mína. Við höldum í minninguna, á æfingasvæðinu er mynd af liðinu frá 82 og Evrópubikarnum, þar var Shaw leiðandi afl,“ sagði Spánverjinn.

Villa mætir Young Boys á gervigrasvelli svissneska liðsins í Bern og ákvað Emery að mæta degi fyrir leik og æfa á undirlaginu frekar en að æfa í Birmingham og ferðast í kjölfarið eins og venjan er.

„Við þurfum að aðlagast. Við erum tilbúnir og notum það ekki sem afsökun að spila á öðruvísi undirlagi. Ég tel okkur geta spilað eins og við gerum á heimavelli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert