Anthony Martial er genginn til liðs við AEK Aþenu en hann yfirgaf Manchester United í sumar. Hinn 28 ára gamli Martial skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Martial fór til Manchester United nítján ára gamall frá Mónakó og var talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu á þeim tíma. Ferill hans hjá Manchesterliðinu var kaflaskiptur en meiðsli og sveiflukenndar frammistöður gerðu að verkum að hann var lánaður til Sevilla árið 2022.
Samningur Martial rann út í sumar og United ákvað að framlengja ekki við hann þar sem hann var ekki í plönum Erik ten Hag, knattspyrnustjóra enska liðsins.