Stoke City hefur ráðið Spánverjann Narcis Pelach sem knattspyrnustjóra félagsins. Steven Schumacher var rekinn á dögunum frá félaginu.
Pelach kemur frá Norwich þar sem hann var aðstoðarþjálfari með Johannes Hoff Thorup en Pelach er 36 ára gamall.
Stoke situr í þrettánda sæti B-deildar og mætir Hull City á föstudagskvöld.