Enski knattspyrnumaðurinn Kyle Walker-Peters mun væntanlega yfirgefa herbúðir Southampton eftir tímabilið.
Hann hefur verið í samningaviðræðum við félagið undanfarna mánuði en þær miðað lítið áfram. Verður hann samningslaus eftir tímabilið.
Walker-Peters, sem er 27 ára, kom til Southampton frá Tottenham árið 2020. Hann hefur leikið 140 deildarleiki með Southampton og skorað í þeim tvö mörk.
Hann féll með Southampton-liðinu á þarsíðustu leiktíð en hjálpaði því að komast upp í ensku úrvalsdeildina þar sem liðið er nýliði á tímabilinu. Hann á tvo leiki fyrir enska A-landsliðið.