Þrjú rauð spjöld fóru á loft í 2:2-jafntefli Brighton og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Jack Hinshelwood og Danny Welbeck skoruðu mörk Brighton en Chris Wood og Ramón Sosa skoruðu mörk Nottingham Forest.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.