Liverpool til Brighton – Tottenham og City mætast

Liverpool heimsækir Brighton í fjórðu umferð deildabikarsins.
Liverpool heimsækir Brighton í fjórðu umferð deildabikarsins. AFP/Paul Ellis

Brighton & Hove Albion fær Liverpool í heimsókn í fjórðu umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu karla en dregið var í kvöld. Tottenham Hotspur mætir Manchester City í stórleik umferðarinnar.

Alls verða fjórir úrvalsdeildarslagir þar sem Manchester United fær Leicester City í heimsókn á Old Trafford og Aston Villa mætir Crystal Palace.

Þeir gætu orðið fimm þar sem AFC Wimbledon og Newcastle United eiga eftir að mætast í þriðju umferð. Sigurvegarinn fær Chelsea í heimsókn.

Stefán Teitur Þórðarson og liðsfélagar hans í Preston North End fá þá verðugt verkefni þar sem Arsenal kemur í heimsókn.

Drátturinn í heild sinni:

Brentford - Sheffield Wednesday

Southampton – Stoke City

Tottenham Hotspur - Manchester City

AFC Wimbledon/Newcastle United - Chelsea

Manchester United - Leicester

Brighton - Liverpool

Preston North End - Arsenal

Aston Villa - Crystal Palace

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert